Allt gleymt? | Nýr ađgangur | Notendanafn: Lykilorđ:

 
 
 

Almennt / Varðandi tjáningar.

Andlit..skrifađ 28. júní 2010 kl. 21:59:03
Halló krakkar. Nú hef ég tekið eftir því að flestir ykkar hafa ákaflega lítinn metnað fyrir því að skrifa inn svör og spjall-þræði hér á spjall-borðinu.

Sérstaklega eru sumir notendur sem virðast eingöngu setja inn þræði til þess að fá einhvers-konar útrás fyrir þeim málefnum sem að þeir hafa hugsað dálítið of lítið um. Munið bara, börnin góð, að alltaf er best að hugsa vel út í það sem að maður ætlar að tjá sig í sambandi við, svo að skilaboðin manns komi skýrt út og án endurtekninga.

Munið það: Engar endurtekningar. ; )


Einnig vil ég minnast á það að gjarnan vilja notendur spjallsins endilega tjá sig um mál sem þeir hafa einfaldlega ekki hundsvit á. Það finnst mér vera afskaplega leiðinlegt. Hugsið ykkur, ef þið vissuð rosalega mikið um ákveðna hluti og þið lentuð svo sífellt í því að sjá ákaflega vitlaust fólk reyna að tjá sig eitthvað um það. Hugsið ykkur hversu ergjandi það væri ykkur, ef að þið sæjuð fólk í sífellu tjá sig um það, sem það vissi ekkert um.

Ég vona að þið skiljið hvert ég er að fara með þessu. Reynið svona að hugsa dálítið og hika áður en þið reynið að tjá ykkur eitthvað. Þið eruð jú bara börn. : )

Eitt svona alveg að lokum: Undanfarið hefur algengt umræðuefni hér á spjallborðinu verið varðandi svokallaða perverta og barnaníðinga. Það finnst mér vera dálítið skondið. Sérstaklega í ljósi þess að slíkir menn, ef þeir finnast jafnvel á spjalli þessu, myndu ekki hika við það að nýta sér þessa spjall-þræði til þess að afla sér trausts sljórra barna sem að halda það að einhvers-konar skilmálar barnaníðinga fyrirfinnist sem neyði þá til þess að gefa sig upp eða jafnvel bara gefast upp á öllu brasinu þegar einmitt börnin sem þeir sækjast eftir heimti að þeir hætti sínum sora-siðum.

Það er náttúrulega barnslegur einfaldleiki að halda það að orðin ein geti sannfært þessu andstyggðar-menn um það að barna-níð sé af hinu slæma. Leyfið
bara fagmönnunum um það starf að uppræta glæpastarfsemi úr spjallherbergjum hérlendis. Ekki haldið þið þó að þið búið yfir einhvers-konar yfirnáttulegum, afbrigðilegum ofurkröftum eins og sjálfur súpermann sem leyfa ykkur það að sinna starfi lögregluþjóna á internetinu. Það er mesta fjarstæða að halda það, að þið getið einhvernvegin stigið í stað lögreglunnar.

Ég myndi mæla með því að þið haldið ykkar skoðunum um slíka menn og hinar ýmsu reglur spjallborðsins út af fyrir ykkur börnin, og máské ykkar nánustu leikfélaga. Endilega, ekki hika við það að spjalla við forledra ykkar um öryggi og góðar venjur á internetinu, sérstaklega þegar kemur að eðlilegum mannlegum samskiptum, sem geta skipt sköpum þegar kemur að því að finna nýja og skemmtilega leikfélaga. Varla viljið þið að allir haldi ykkur einhverja retarði. ; )
Andlit..skrifađ 28. júní 2010 kl. 22:04:46
Leiðréttingar:
"hversu ergjandi það væri fyrir ykkur"
"spjalla við foreldra ykkar"

Afsakið þessar villur, ég vona að þetta hjálpar-rit geti komið sér að góðum notum þrátt fyrir örfáar flótfærnislegar innsláttarvillur.

Kv,

Andlit
Káreeh..skrifađ 29. júní 2010 kl. 11:05:05
Vel mælt, Andlit.
Andlit..skrifađ 3. júlí 2010 kl. 18:24:33
Upp með þetta.
Anya..skrifađ 7. júlí 2010 kl. 21:08:05
vel mælt
Sóló**..skrifađ 13. júlí 2010 kl. 11:09:49
Jeee, þú meikar sens... Like á þetta! :0
allendi..skrifađ 13. júlí 2010 kl. 21:58:32
Umm börn? Ég er sko ekkert barn góði.
Káreeh..skrifađ 13. júlí 2010 kl. 23:39:13
allendi, það getur nú ekki annað verið.. Vegna þess hvernig þú hagar þér..
FoeFoe..skrifađ 13. júlí 2010 kl. 23:45:54
haha allendi þú ert 13 ára
Whiteangel..skrifađ 17. júlí 2010 kl. 17:23:55
Allendi: Lagalega séð ertu barn :)
allendi..skrifađ 29. júlí 2010 kl. 22:45:55
Jamms Káreeh það er ekkert endilega hvernig ég haga mér. Í raun er ég eldri en þú svo að þú ert meira barn en ég. Samt verð ég að viðurkenna að ég er barnaleg og heimsk.
allendi..skrifađ 31. júlí 2010 kl. 09:20:40
Annars Andlit vel mælt.
-RichardDave..skrifađ 31. júlí 2010 kl. 17:59:19
Mér finnst líka spes.. þegar fólk segir inná prófílunum sínum "engir perrar mega kommenta eða adda mér sem vin" eða einhvað þannig.
Perrar sem eru að skoða síðurnar eru ekkert.. "Ó.. ókei.. ég kem mér þá bara"
Annars skil ég þetta alveg og ekki taka þessu ehv illa.
Og ég er mjög sammála Andlit um þetta.
allendi..skrifađ 31. júlí 2010 kl. 19:49:55
Nú veit ég hver RichardDave er :D
allendi..skrifađ 16. ágúst 2010 kl. 15:02:23
Káreeh, reyndar ertu ekki barn heldur ég?
Sóló**..skrifađ 20. ágúst 2010 kl. 15:12:23
Allendi... Viltu frekar vera fullorðin með fullt af verkum og hlaupandi litlum krökkum og þurfa að borga skatt og eitthvað, frekar en að vera barn með engar áhyggjur, sem getur bara lifað lífinu til fulls án nokkurra vandræða? :O Barn hljómar betur fyrir mér 8]
slaufa..skrifađ 20. ágúst 2010 kl. 22:03:10
Ég er barn, þeir sem eru yngri en 18 ára eru það. Ég veit ekki hvers vegna ég var svona heimsk að geta ekki viðurkennt það..


Til baka