Ég er alltaf endalaust að biðja um leik aftur og aftur. Fæstir svara mér, bara þögn. Hundleiðinlegt. Flestir sem á annað borð svara hafna leik, það finnst mér hundleiðinlegt. Þegar menn neita þá reyni ég að giska og reyna að þóknast þeim, ég skipti um lit og hækka og lækka tímann með nýju og nýju boði. Það finnst þeim alveg örugglega hundleiðinlegt. En svo í gerist kraftaverkið og einhver þiggur boð mitt, þess vegna nenni ég að reyna. Mér finnst þræl gaman að tefla og skáborðið er ágætt (nema vantar þráskák).
Ég er með hugmynd: Hafa lista þar sem menn stilla sér upp til leiks, og hafi etv comment: "Er í stuði fyrir hraðskákir, tefli ekki við menn undir 1300 stigum." Þá getur maður hætt þessum sífelldu áskorunum á menn sem eru loggaðir inn bara til að fylgjast lauslega með en ætla ekkert að tefla. Eyða meiri tíma í tafl og minni tíma í sífeldar leikbeiðnir.
PS: Login Nafnið mitt 5MinEdaMei var veikburða tilraun mín til að gefa í skyn "5 mínútur eða meira" til að menn væru ekki að skora á mig í 3 mín skákir, en það hefur ekki virkað sérlega vel.
docktor-sex..skrifað 19. febrúar 2010 kl. 21:54:48
Ég þekki ekki þráskák því væri gott að fá góðar upplýsingar um hvernig það virkar.
Mér líst einnig vel á þær hugmyndir sem 5MinEdaMei gefur að ofan. Ég verð að finna mér tíma bráðlega til að bæta þessu við, það væri góð hjálp ef þið gætuð búið til þráð eða svarað þessum þráði með nægilegum upplýsingum hvernig þráskák virkar.
Því miður er ég mjög upptekinn með skóla og vinnu þessa dagana og á lítinn tíma eins og er. En ég reyni að útvega mér tíma í bráð.